Föðursystir í öðruveldi, fjallageit og dipermaster!

13 06 2009

Góðan og blessaðann ! :D

Bara láta vita að ég elska nýju vinnuna mína, ég er búin að eignast litla sæta frænku og ég er farin að klifra fjöll ! Takk fyrir góðan dag!

Bróðir minn og konan hans eignuðust litla prinsessu á mánudaginn..hún kom aðeins of snemma og er ponku lítil og sæt. Hún hefur það samt gott og er alger prinsesssa! :D Ég hef samt ekki enn fengið að sjá hana, því auðvita náði ég að næla mér í ógeðslegt kvef og ljótann hósta daginn sem hún fæddist og ekki ráðlagt að koma nálægt fyrirbura með þannig vesen. Ég bíð því ennþá spennt og skoða myndir af henni mjög reglulega í staðinn :p Þvílík gleði og hamingja sem fylgir svona litlum börnum :D

Nýja vinnan mín er líka æði! Það er svo gott að vakna á morganna og vilja fara í vinnuna, en ekki hugsa “oh, ég nenniggi”. Ég er á deild með 1 1/2 – 2 ára börnum. Þau eru svaka hress og gaman að fylgjast með þeim. Ég yfirsteig líka minn mesta ótta við að byrja þarna, kúkableijur! Allt mitt líf hef ég hlaupið eins hratt og fætur toga burt frá bleigjum, en núna, þá er það bara ekki boði! Þetta er ekkert mál (oftast).  46 bleijur á dag er bara ekkert mál…. hehemm…

Á öðrum degi í vinnunni var ég komin í gönguhóp í vinnunni….sure.. why not… Ég var dregin uppá Helgarfellið. Það var persónulegur sigur að hafa farið upp fjall, án þess að deyja hreinlega. Ég var, og er, hrikalega ánægð með sjálfa mig og tek öllum áskoronum fagnandi hendi núna! Vikuna eftir fórum við svo uppá Keili…það var aðeins öðruvísi, en hörkufjör líka. Ég fékk endorfín-og andrenalínkast og hljóp upp restina og slide-aði niður. újeee! Annað fjall svo í næstu viku! og hver veit nema við skellum okkur svo í sjósund! ójá…fjör fjör fjör!

Svo labba ég heim úr vinnunni á hverjum degi, tekur ekki nema 45-50 min :p ýkt hressandi og gott. Það er svo gott að vera svona hress á því og ánægður með sjálfa sig. Fílað’a !

Keilir. Einhverstaðar uppí miðju fjalli, maður þurfti að labba hevílengi til að komast að fjallinu..sést kannski smá í 1/4 af gönguleiðinni þarna á mydninni. Tekið með símanum mínum..classi ;)

Keilir. Einhverstaðar uppí miðju fjalli, maður þurfti að labba hevílengi til að komast að fjallinu..sést kannski smá í 1/4 af gönguleiðinni þarna á mydninni. Tekið með símanum mínum..classi ;)

Ég í egókasti, þvílíkt hress á toppnum á Helgafelli. Mín hljóp sko upp restina uppá topp ! ójá :p

Ég í egókasti, þvílíkt hress á toppnum á Helgafelli. Mín hljóp sko upp restina uppá topp ! ójá :p

Næstum allir dagar frá 23.maí sl. hafa verið frábærir ! Im happy…luving the summer ! :D

Allir komandi dagar verða líka þannig.. I know it ;)

-


Actions

Information

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.